ja_mageia

Logo

  • Narrow screen resolution
  • Wide screen resolution
  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Um rjupa.is Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

RjúpaRjupa.is er sölukerfi þar sem veiðimenn geta keypt veiðileyfi á rafrænan hátt í gegnum veraldarvefinn.

Á vefnum koma fram stærð og mörk veiðisvæðis á korti. Enn fremur er hægt að hlaða niður mörkum einstakra veiðisvæða á Garmin GPS tæki. Takmarkaður fjöldi veiðileyfa er seldur á hvert svæði, sem kemur í veg fyrir að of margir gangi til rjúpna á sama veiðisvæðinu samtímis.

Til að kaupa veiðileyfi þarf að tilgreina veiðikortanúmer sem verður borið saman við gagnagrunn veiðistjórnunarsviðs Umhverfisstofnunar. Enn fremur er ætlast til þess að veiðimenn skili inn veiðitölum rafrænt að veiði lokinni. Með því móti hjálpa þeir til við að safna upplýsingum um stærð og viðgang rjúpnastofnsins.

Með tilkomu vefsíðunnar rjupa.is er landeigendum gert kleift að hagnast á veiðihlunnindum jarða sinna á einfaldan og skilvirkan hátt.  Nánari upplýsingar til landeigenda er að finna hér.

Skilyrði fyrir þátttöku eru: 

  • Að eignaréttur veiðisvæðis sé óumdeilanlegur og að engar aðrar hömlur á veiði á svæðinu af hálfu yfirvalda séu fyrir hendi.
  • Að svæðið sé „gott“ rjúpnaland með þekkta veiðisögu.
  • Að svæðið sé að lágmarki 500 ha. (En landeigendur með minni jarðir geta sameinast og deilt ágóða eftir flatarmáli hverrar landeignar).

Fyrirtækin Skógráð ehf. og Austurnet ehf. hafa í samvinnu við Skógrækt ríkisins hannað sölukerfið, sem opnaði fyrst til reynslu á rjúpnaveiðitímabilinu haustið 2008. Árið 2009 bættust nokkrar jarðir í hópinn og ýmsir vankantar sniðnir af kerfinu.  Nú í haust, 2010, keyrum við kerfið í þriðja sinn og vonumst eftir að því verði jafnvel tekið og áður. Í byrjun voru veiðileyfi á völdum jörðum í eigu Skógræktar ríkisins seld í gegnum vefinn. Í fyrra bættust við fleiri svæði í eigu Skógræktar ríkisins og tveir einkaaðilar voru skráðir inn til reynslu.  Vonandi tekst að fjölga þeim í ár.

Skógráð ehf. hefur nú dregið sig að mestu út úr þessari vinnu þar sem eigandinn er fluttur af landi brott og reksturinn enginn eins og stendur. Austurnet ehf. mun standa að rekstrinum í ár í samstarfi við Skógrækt ríkisins og aðra landeigendur.

Það er von þeirra er að verkefninu standa að reynslan í upphafi leiði til þess að útbreiðsla kerfisins verði almenn innan nokkurra ára. Hönnuðir þakka Vaxtarsamningi Austurlands veittan stuðning.

 

Veiðum lokið !

Rjúpnaveiðitímabilinu lauk þann 5. desember sl. Alls voru seld 337 veiðileyfi á 8 mismunandi jarðir.  Aðeins 3,9 % veiðimanna skilaði veiðitölum inn á vefinn.

Þökkum samstarfið og verðum vonandi aftur hér að ári.

Könnun

Hve oft ferðu á rjúpnaveiðar ?
 

Austurglugginn